![]() | ![]() | ![]() |
---|---|---|
![]() | ![]() | ![]() |
![]() |
Slökun Í Tímaleysi
7. - 9. ágúst
Komdu og slakaðu á í friðsælu umhverfi íslenskrar náttúru. Andlegt jafnvægi er lykillinn að góðri heilsu og gríðarlega mikilvægt að geta slitið sig frá hinu daglega amstri. Leyfðu þér að njóta og nærast, findu jafnvægi og dýpri tengingu við þinn innsta kjarna.
Þessi helgi verður algjör slökun, tímaleysið mun eiga stóran þátt í að færa þig frá föstum vönum og leyfa þér að hlusta á þína náttútulegu líkamsklukku. Jóga, öndun, útivera og hugleiðslur ásamt fræðslu um taugakerfið og hvernig við getum haft áhrif á það með auðveldum aðferðum. Þessar aðferðir getum við auðveldega nýtt okkur til að skapa ró í kerfinu þegar við upplifum hið daglega amstur.
Þessi helgi býður upp á rými til að hvíla og endurræsa taugakerfið á nýjan hátt. Hér er frábært tækifæri til að verja tíma með sjálfum þér, tengjast kjarnanum og ferðast inn í upprunann þinn. Hér getur þú endurnært, upplifað nær-VERU með sjálfum þér og tengst mættinum sem býr innra með þér. Þessi helgi býður svo sannarlega upp á næringu sem færir þig nær sjálfum þér;
SLÖKUN
SLÖKUN & HUGLEIÐSLA
CEREMONIAL CACAO
FLOTÞERAPÍA
ÖNDUN
JÓGA
TÍMALEYSI
TÓNHEILUN
HEITUR POTTUR
ÍSLENSKA NÁTTÚRAN
HEILSUFÆÐI
2 NÆTUR
ÞÚ
Eirð
Þessi yndislegi staður er staðsettur við Gíslholtsvatn í Holtshreppi, skammt austan Þjórsár.
Eirð samanstendur af einni aðalbyggingu og þremur rúmgóðum gistihúsum, þar sem blandað er saman gömlum skandinavískum skála með nútímalegum skandinavískum arkitektúr.
Aðalbyggingin státar af þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum með sturtu, stóru eldhúsi, bókasafni með viðarofni, borðstofu með beinu útsýni yfir vatnið, með arni út af borðstofunni og heitum potti.
nánar um Eirð hér.
Heilun í vatni
Samflot Flotþerapía Tónheilun
SAMFLOT
Njóttu þess að sleppa takinu í sælu og kyrrð á meðan þú losar um spennu í öllum líkamanum. Blóðþrýstingur og hjartsláttur hægir á sér um leið þú sekkur inn í djúpt og afslappað ástand. Að fljóta dregur úr streitu, hjálpar líkamanum að afeitra sig, léttir á eymslum, flýtir bata á meiðslum og vinnur vel gegn svefnleysi, þunglyndi, streitu og kvíða. Eftir flot kemst þú dýpri tengsl við sjálfan þig. Finnur fyrir skýrleika og einbeitingu, líkamlegri og andlegri endurnýjun.
FLOTÞERAPÍA
Kyrrð, mýkt og eftirgjöf fylgja okkur inn í djúpa slökun þar sem að við þiggjum heilandi meðhöndlun í þyngdarleysi vatnsins. Líkaminn fær að vinda úr sér um leið og hann gefur eftir inn í flæði og frelsi vatnsins. Á meðan heilandi tónar nudda hverja einustu frumu. Þannig skapast rými til að losa um og sleppa takinu á því sem þjónar okkur ekki lengur.
Tíbeskar Tónskálar
TÍBESKAR SÖNGSKÁLAR hafa verið notaðar öldum saman í heilunar tilgangi og til þess að skapa ánægjulegt hugleiðsluástand. Þær gefa frá sér ákveðnar hljóðbylgjur sem að aðstoða líkamann við komast í sitt upprunalegt form.
Hljóðbylgjurnar bera með sér ákveðna tíðni. Þessi tíðni hefur jákvæð áhrif á það sem er í ósamræmi við líkamann, aðstoðar hann við að endurraða sér og skapa samhljóm milli huga líkama og sálar. Þær vinna vel gegn streitu, sársauka, þunglyndi og flestum kvillum sem geta herjað á líkama og huga.
Í þessu heilunarástandi samstilla hljóðbylgjur söngskálana sig við heilabylgjur og skapa fullkomið ástand fyrir djúpa hugleiðslu, skapandi hugsun og djúpa tengingu við innsæið!
Þessar tæru hljóðbylgjur sem að víbra frá tíbesku söngskálunum ýta undir þann hæfileika að hlusta ekki aðeins með eyrunum heldur að finna og skynja með líkamanum okkar!
Kakó
Kakó er létt og milt plöntumeðal (plant medicine) sem hefur verið notað í andlegum tilgangi í þúsundir ára af innfæddum í Suður og Mið Ameríku.
Kakóið eykur blóðflæðið um líkamann og auðveldar ferðalagið sem fer með þig djúpt inn á við. Við förum í dýpra líkamlegt, tilfinningarlegt og andlegt ástand sem veitir okkur ákveðna athygli sem við getum beint hvert sem er.
Þetta kakó kemur frá regnskógum Guatemala og fer ekki í gegnum hefðbundið vinnsluferli og haldast því öll næringarefnin í súkkulaðinu.
Kakóið er meðal annars hlaðið af andoxunarefnum og öðrum mikilvægum steinefnum. Kakóið býður upp á mesta magn Magnesíums sem hægt er að finna í plönturíkinu. Það inniheldur Phenylethylamine (PEA), efni sem við framleiðum þegar við verðum ástfangin og Anandamide, sem er einnig þekkt sem "the bliss chemical" og finnst aðeins í kakó plöntunni. Að auki inniheldur það Króm, Theobromine, Manganese, Sink, Kopar, Járn, C vítamín, Omega 6 fitusýrur og Tryptophan sem bara brot af þeim efnum sem kakóið inniheldur.
Leiðbeinandur
Arnór hefur kennt Jóga og vitundartengd námskeið frá því í september 2013. Hann hefur ferðast víðsvegar um heiminn og sótt fjöldan allan af námskeiðum sem tengjast Jóga, hugleiðslu og andlegri vinnu. Öndun er eitt af hans sérsviðum!
hefur lokið mastersnámi í íþrótta- og heilsufræði og 200 tíma jógakennaranámi frá Costa Rica. Hún hefur starfað sem heilsuþjálfari, jóga- og hóptímakennari frá 2015. Í gegn um árin hefur hún setið margskyns námsskeið og ráðstefnur varðandi heilsu, lífsstíl og hreyfingu, meðal annars athafnað sér með ýmsum óhefðbundnum aðferðum í þeim tilgangi að afla sér sem mestrar vitneskju á öllum sviðum.
Verð & Skráning
Verð á mann:
65.000kr kr single rúm í 3manna herbergi
77.000 kr single rúm í 2manna herbergi
88.000 kr einn í herbergi
Hægt er að dreyfa greiðslunni
Til þess tryggja plássið biðjum við fólk um að greiða 29.000 kr í staðfestingargjald.
TOPP HEILSA ehf.
513-26-9744
Kt. 500918 1790
Greiðslukvittun á
Allar nánari upplýsingar:
eða hringdu í 778 9072
Hlakka til að heyra frá þér!